Hrikalega dónaleg brúðkaupsmynd

Danir geta verið ferlega frjálslegir þegar kemur að kynlífi og öllu sem því tengist. Stundum finnst fólki nóg um en parið Fia Sander Dræby og Mike Sander Dræby slógu sennilega fyrri met í vikunni þegar þau gengu í heilagt hjónaband.

Í tilefni dagsins var auðvitað fenginn ljósmyndari til að mynda hjónin og fanga stemninguna. Áherslur ljósmyndara eru mismunandi en í þessu tilviki var hann greinilega að vinna með kynlífstengd atriði en á myndinni sést brúðurin veita brúðgumanum munnmök úti í náttúrunni á meðan hann svolgrar í sig bjór!

Smekklegt. Aðspurðri fannst brúðinni þetta allt saman ægilega fyndið og lýsti því hvernig strandgestir hefðu rokið í burtu þegar myndatakan var í gangi. Það er kannski ekki skrýtið miðað við efni myndarinnar en á henni má jafnframt sjá að það er komin sól og sumar hjá nágrönnum okkar í Danmörku.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál