Birgitta og Hinrik eru nýtt par

Hinrik og Birgitta voru klædd í stíl á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni.
Hinrik og Birgitta voru klædd í stíl á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni. Instagram/birgittalif

Birgitta Líf Björnsdóttir og Hinrik Ingi Óskarsson eru nýtt par. Parið birti mynd af sér saman á Instagram um helgina þar sem þau voru stödd á Secret Solstice-tónlistarhátíðinni. 

Birgitta Líf er 24 ára mastersnemi, flugfreyja og framkvæmdarstjóri Ungfrú Ísland. Hún er einnig félagi í Snapchat-hópnum RVK fit og er nýbyrjuð að blogga fyrir Trendnet þar sem hún skrifar um alls kyns hluti tengda heilsu, hreyfingu og tísku. 

Líkt og Birgitta þá er Hinrik Ingi Óskarsson í fantaformi en hann stundar crossfit af kappi.

Birgitta var áður í fjögurra ára sambandi með landsliðsmanninum Rúrik Gíslasyni en þau hættu saman í góðu fyrr á þessu ári.

Smartland óskar þeim Birgittu og Hinrik til hamingju með ástina!

Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjóri World Class og flugreyja, kann vel …
Birgitta Líf Björnsdóttir, samfélagsmiðlastjóri World Class og flugreyja, kann vel að meta falleg föt. Hún tekur sig jafnvel út í síðkjólum og æfingafatnaði, enda geislar hún af heilbrigði.
Hinrik stundar crossfit af kappi.
Hinrik stundar crossfit af kappi. Instagram/hinrikingi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál