Reykjavíkurmaraþonið er ef til vill vinsælasti viðburðurinn á Íslandi á eftir Þjóðhátíð í Eyjum. Bæði Íslendingar sem og ferðamenn taka þátt en þónokkuð af landsþekktu fólki munu hlaupa til góðs í ár.
Camilla Rut
Snapchat-stjarnan ætlar að hlaupa 10 kílómetra fyrir litla bróðir sinn, fyrir litlu frændur sína og öll börn sem hafa þurft og þurfa á þjónustu Barnaspítalan Hringsins að halda. En Camilla hefur safnað 815 þúsund krónum.
Dóri Dna
Grínistinn hleyptur 10 kílómetra fyrir Reykjadal en hann segir að það væri gaman að geta gefið þessum frábæra og yndislega stað gjöf. Dóri hefur safnað 200.000 þúsund.
Guðrún Veiga
Snapchat-stjarnan ætlar að hlaupa 10 kílómetra með Hildi vinkonu sem greindist með bráðahvítablæði árið 2016. Þær stöllur ætla hlaupa til styrktar Minningarsjóðs blóðlækningardeildar Landspítalans. Guðrún Veiga er búin að safna 316 þúsund og er löngu búin að ná markmiði sínu sem var einungis 50 þúsund.
Hugleikur Dagsson
Fyrir einhverjum árum hefðu fáir trúað því að hipsterinn Hugleikur mundi taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu. Nú ætlar hann hinsvegar 10 kílómetra og hefur hann safnað 16 þúsund krónum fyrir Parkisonsamtökin.
Marta María
Lífstílsdrottningin Marta María, sem stýrir þessum vef, ætlar að hlaupa 10 kílómetra til styrktar Duchenne samtakanna af persónulegum ástæðum. En Marta María hefur safnað 30 þúsund krónum.
Ólafur Stephensen
Ólafur sem starfar nú sem framkvæmdastjóri Félags atvinnurekanda ætlar að hlaupa hálft maraþon fyrir Ljósið en hann hefur safnað 124 þúsund krónum.
Steindi Jr.
Grínistinn ætlar að hlaupa hálft maraþon fyrir Neistann. Steindi er búinn að safna yfir 370 þúsund krónum.
Sunneva Eir Einarsdóttir
Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva ætlar að hlaupa 10 kílómetra. En hún hleypur fyrir Einstök börn og hefur safnað yfir 120 þúsund krónum.
Sveinn Andri Sveinsson
Stjörnulögfræðingurinn hleypur heilt maraþon til styrktar sjálfsvígsforvarnarsamtökin Pieta Ísland, til minningar um Bjarna Eiríksson lögmann og ljósmyndara. Sveinn Andri hefur safnað yfir 170.00 þúsund.
Vinir Stefáns Karls
Þau Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur, Baggalúturinn Karl Sigurðsson og unnusta hans Tobba Marinós hlaupa fyrir Kraft en hópurinn hefur eins og er safnað yfir 220 þúsund krónum.
Hildur Björnsdóttir
Hildur sem er lögfræðingur og pistlahöfundur ætlar að hlaupa 10 kílómetra fyrir Ljósið en það var eitthvað sem hún bjóst ekki við að geta gert fyrir ári síðan. En fyrra sumar greindist hún sjálf með krabbamein. Hildur hefur safnað hátt í 900 þúsund.