Bjöggi og Beckham á ströndinni

Harper Seven skemmti sér með þeim Björgólfi Thor og David …
Harper Seven skemmti sér með þeim Björgólfi Thor og David Beckham. skjáskot/Daily Mail

Fjárfestirinn Björgólfur Thor Björgólfsson eyddi sunnudeginum á ströndinni með knattspyrnustjörnunni David Beckham og fjölskyldu hans. 

Daily Mail birti myndir af strandarferð knattspyrnukappans. Breski fréttamiðillinn nafngreinir ekki Björgólf en lýsir honum sem silfurref. Miðað við myndirnar virðast þeir félagar vera hinir mestu mátar og Björgólfur hikar ekki við að fara inn á persónulegt svæði Beckhams. 

Með á ströndinni voru börn þeirra Victoriu og Davids Beckham, Brooklyn, Romeo, Cruz og dóttirin Harper Seven. Cruz Beckham er einmitt góður vinur Daníels Darra en hann er sonur Björgólfs og Kristínar Ólafsdóttur. Svo gera má ráð fyrir að hann hafi verið í för með Björgólfi föður sínum. 

Victoria Beckham birti mynd í síðustu viku af þeim Daníel Darra og Cruz þar sem þeir slökuðu á við sundlaugarbakkann. 

Björgólfur Thor og David Beckham eyddu sunnudeginum saman á ströndinni.
Björgólfur Thor og David Beckham eyddu sunnudeginum saman á ströndinni. sjáskot/Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál