Ellý þráir að losna við húðflúrið

Ellý Ármannsdóttir prýddi forsíðu MAN í júní.
Ellý Ármannsdóttir prýddi forsíðu MAN í júní.

Ellý Ármannsdóttir lét húðflúra nafn fyrrverandi kærasta á sig og leitar nú logandi ljósi að aðferð til að láta fjarlægja húðflúrið. 

„Ég gerði mestu mistök ævi minnar fyrir ekki alls löngu. Ég fékk mér húðflúr með nafni þáverandi kærasta. Hvar get ég látið taka þetta **** af mér? #égveit#ekkiorð,“ segir Ellý Ármannsdóttir á Facebook-síðu sinni. 

Ellý hætti nýverið með kærasta sínum, Steingrími Erlingssyni, fyrrverandi forstjóra Fáfnis Offshore. Ellý og Steingrímur voru mjög ástfangin en nú er ástin slokknuð. 

Ellý prýddi forsíðu MAN í júní og sagði þá eftirfarandi: 

„Hver ein­asti dag­ur með hon­um er æv­in­týri lík­ast­ur. Við lát­um eins og kján­ar en á sama tíma erum við sam­stillt og það á jafn­ingja­grund­velli,“ seg­ir Ellý og bæt­ir við: „Svo drekk­ur hann ekki áfengi sem er mik­ill kost­ur. Líf mitt er gott núna. Mjög gott. Loks­ins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál