Byrjuðu aftur saman og hættu að drekka

Hin ástsæla söngkona Ellen Kristjánsdóttir prýðir forsíðu jólablaðs MAN sem kemur út í dag. Ekki úr vegi enda kemur Ellen fram á fjölmörgum jólatónleikum á aðventunni eins og undanfarin ár, með bróður sínum KK, Borgardætrum og einnig í miðnæturmessu á aðfangadag í Fríkirkjunni, en hún tók við því kefli af Páli Óskari Hjálmtýssyni á síðasta ári.

Ellen fer um víðan völl í viðtalinu en forsíðufyrirsögnin, Ein besta ákvörðun lífsins að sleppa áfengi, vísar í kafla viðtalsins þar sem hún ræðir hvernig hún og eiginmaður hennar, Eyþór Gunnarsson tónlistarmaður, tóku þá ákvörðun að gera alvarlega lífsstílsbreytingu eftir að leiðir þeirra skildi um hríð.

„Við vorum skilin í eitt og hálft ár en tókum saman aftur á þeim forsendum að breyta um lífsstíl. Það var komið nóg af ruglinu enda getur þessi tónlistarheimur svo sannarlega boðið upp á það. Allt í kringum mig hafði áfengi líka valdið eintómum hörmungum og óhamingju,“ segir Ellen í viðtalinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál