Helle Berry sýnir hold

Halle Berry, Karolina Kurkova og Selena Gomes.
Halle Berry, Karolina Kurkova og Selena Gomes. mbl.is/Samsett mynd

Leikkonan Halle Berry er með flottan búk og því er ekkert skrýtið að hún reyni að flagga vextinum. Hún sýndi þokka sinn í splunkunýjum kjól frá Halston þegar hún mætti á FiFi verðlaunin í New York.

Um þessar mundir eru kjólar, sem sýna mikið hold, sérlega áberandi í sumartískunni. Vel vaxnar stjörnur eru óhræddar við sýna fallegan limaburð sinn. Halle Berry var þó ekki sú eina sem skartaði framúrskarandi skvísukjól því Selena Gomes sýndi hold á hátíðinni. Hún var með mjaðmirnar í beinni útsendingu og skartarði hárri klauf á meðan Karolina Kurkova mætti í reimuðum kjól frá Emilio Pucci. Þar sást greinilega hvað daman er með vel þjálfaða magavöðva.

Það voru þó ekki allar jafn smart því Gwen Stefani, Fergie og Kesha skörtuðu hræðilegum útfærslum af kjólnum.  Myndirnar hér fyrir ofan sýna það glögglega.

Gwen Stefani, Fergie og Kesha skörtuðu hræðilegum útfærslum af kjólnum.
Gwen Stefani, Fergie og Kesha skörtuðu hræðilegum útfærslum af kjólnum. mbl.is/Samsett mynd
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál