Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| mbl
| 9.1.2012
| 11:52
| Uppfært
8.2.2012
14:16
Passaði að Middleton rigndi ekki niður
Vilhjálmur Prins passaði upp á að Katrínu Middleton rigndi ekki niður þegar þau mættu á frumsýningu War Horse á Leicester Square. Hann hélt glærri og mjög smekklegri regnhlíf yfir frúnni svo hún myndi ekki blotna í gegn.
Um er að ræða frumsýningu á nýjustu mynd Stevens Spielbergs og var allt fræga fólkið mætt til leiks. Frú Middleton bar af í skósíðum blúndukjól og með krullur í hárinu. Hún bar ekki mikið af skartgripum heldur leyfði kjólnum að njóta sín. Auk þess farðaði hún sig örlítið meira en vanalega.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























