Elle svarar ásökunum um kynþáttafordóma
Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.isFranska tímaritið Elle hefur brugðist við ásökunum um að breiða út kynþáttahatur og segir þær ekki eiga við rök að styðjast en grein sem birtist á bloggsíðu blaðsins undir heitinu Black fashion power hefur hlotið hörð viðbrögð, bæði vestanhafs og austan. Greinin hefur nú verið fjarlægð af vefnum en þar sagði að svartar efnakonur væru nú loksins farnar að klæða sig smekklega eins og hvítar konur, að fyrirmynd forsetafrúarinnar Michelle Obama.
Gagnrýnin á innihald greinarinnar hefur komið úr öllum áttum. New York Daily News segir að með skrifunum hafi blaðamanni Elle, Nathalie Dolivo, tekist að móðga svarta Bandaríkjamenn. Dolivo sagði í grein sinni að forsetafrúin Obama væri tískufyrirmynd svarta efnakvenna í Bandaríkjunum og með óaðfinnanlegum fatastíl sínum hefði hún haft þau áhrif að glæsileg, kvenleg föt hefðu nú rutt hinni dæmigerðu götutísku úr vegi.
Huffington Post hefur uppi stór orð um grein Elle og spyr hvort það sé virkilega svo að svartar konur hafi ekki haft smekk fyrir fallegum fötum og kunnað að klæða sig fyrr en Michelle Obama settist að í Hvíta húsinu. Franski stjörnublaðamaðurinn Audrey Pulvar, einn fárra svartra í heimi franskra fjölmiðla, segir skrif Elle bera vott um fáfræði og kynþáttafordóma.
Ritstýra Elle, Valerie Toranian, hefur nú sent frá sér afsökunarbeiðni á vef blaðsins þar sem hún kveðst harma skrifin. Blaðakonan Dolivo sem fjaðrafokinu olli hefur sömuleiðis sent tilkynningu þar sem hún biðst innilegrar afsökunar og útskýrir að greinin hafi verið misskilin, hún beri djúpa virðingu fyrir öllum konum.
























