Glassúruð sumartíska: Bleikt skal það vera

Mynd 1 af 4
mbl.is/Samsett mynd

Eftir dimman janúar sést loks til sólar og þá er gott að svipta af sér vetrarhulunni og klæða sig í bleikt. Ljósbleikur er einn af aðallitunum næsta sumar og því ekki úr vegi að taka dálítið forskot á sæluna.

Chanel sýndi nokkur afbrigði af ljósbleikum fatnaði á tískuvikunni í París í september þegar vor- og sumartískan 2012 var kynnt. Það sem vekur athygli er að nú þykir móðins að vera ekki bara í einni flík í lit heldur í samlitum fötum. Þetta þýðir að það er ekki nóg að klæða sig í ljósbleikan jakka. Við þurfum helst að vera í ljósbleikum kjól innanundir, nú eða í ljósbleikum gallabuxum eða ljósbleiku pilsi. Spænska verslunarkeðjan Zara er með nokkrar útgáfur af bleiku vori og vekur ljósbleik dragt nokkra athygli. Til að brjóta dragtina upp er settur svartur kantur neðan á buxurnar.

Íslenskar konur, sem elska svart meira en flesta aðra liti, ættu að hugleiða hvað litir gera mikið fyrir heildarmyndina. Ef réttur bleikur litur verður fyrir valinu, það er að segja ekki með of miklum bláum undirtóni, virkum við frísklegri í framan og geislum af þokka.

Rétt snið skipta alltaf öllu máli. Við þurfum að þekkja okkar kropp og vita hvað fer honum best. Ef við erum með dúnmjúkt magasvæði er gott að velja flíkur sem liggja ekki þéttingsfast að líkamanum. Ef við erum komnar í lausa flík að ofan skiptir máli að vera í þröngu að neðan og svo má forma líkamann með vel sniðnum jakka.

Þær sem eru dálítið brjóstgóðar ættu að gæta þess vel að hafa ekki of stóra klúta um hálsinn eins og eru svo mikið móðins þessa dagana. Stórir klútar stækka barminn og láta okkur virka stærri en við erum í raun og veru.

Þeim sem þora ekki að fara alla leið með ljósbleika litinn og eru ennþá að velta fyrir sér hvort ljósbleikur heilgalli sé málið má benda á að ljósbleikur varalitur eða ljósbleikt naglalakk geta komið okkur í nettan vorfíling. Svo má alltaf splæsa á sig einni makkarónuköku til að lyfta sálinni upp á hærra plan og njóta lífsins í botn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is