Tískulína fyrir smekkkonur: Haustlína Ellu

Mynd 1 af 15
Haustlína Ellu 2012. mbl.is/Ari Magg

Tískumerkið Ella By Elínrós Líndal kom með sína fyrstu línu á markað síðasta vor. Til að byrja með var línan eingöngu seld á netinu en um mitt sumar opnaði Ella verslun í Ingólfsstræti. Tískulínan vakti strax mikla athygli því línan er búin til úr vönduðum efnum og einstaklega falleg. 

Sniðin eru kvenleg og keyra upp kynþokkann eins og sagt er. Elínrós Líndal, eigandi Ellu, fór á dögunum með haustlínuna til New York, þar sem línan var sýnd við mikinn fögnuð. Kvenleikinn er ennþá ráðandi en línan er töluvert stærri en fyrsta línan og má sjá kjóla sem henta þeim sem vilja ekki hafa allt níðþröngt. Það má því segja að það sé meiri breidd í haustlínunni.

Af myndunum að dæma ætti kvenpeningurinn að bíða spenntur eftir næsta hausti. HÉR er hægt að skoða línuna nánar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is