Tískuhönnuðurinn Karl Lagerfeld liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að holdafari fólks. Eftir að hann grenntist sjálfur hefur hann oftar en einu sinni látið fólk fá það óþvegið vegna aukakílóanna. Í samtali við Metro Paris sagði hann að söngkonan Adele væri aðeins of þykk fyrir sinn smekk.
„Söngkonan Adele er kona augnabliksins en hún er aðeins of feit. Hún hefur mjög fallegt andlit og er með frábæra rödd,“ sagði tískuhönnuðurinn.
Árið 2004 gerði hann línu fyrir sænska móðurskipið H&M. Þegar línan var í undirbúningi vildi hann alls ekki að línan kæmi í stórum stærðum því hann sagði að fötin myndu ekki fara feitum vel.