Langar þig að vinna PRADA-síma?

Mynd 1 af 3

Einn svalasti snjallsíminn á markaðnum var að koma til landsins. Síminn sameinar útlit PRADA og nýjustu tækni LG. Bakhlið PRADA-símans er með sérstöku Saffiano-munstri. Smartland ætlar að gefa heppnum lesanda eintak af símanum. Það eina sem þú þarft að gera er að skrá þig HÉR.

Þótt mikið sé lagt í útlit símans er hann alls ekki eingöngu ætlaður kvenpeningnum. Ítalska tískuhúsið PRADA hefur verið eitt af helstu tískuhúsum heims síðan það var stofnað 1913 og er síminn alveg í anda þess. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti sem PRADA setur símtæki á markað því tvær gerðir hafa komið, árið 2007 og 2008. Nýi PRADA-síminn hefur alla þá eiginleika sem góður snjallsími þarf að hafa og er sá þynnsti á markaðnum eða 8,5 mm.

PRADA-síminn frá LG 3.0 er með 1.0GHz „Dual-Core/Dual-Channel“-örgjörva, sem tryggir háhraðavirkni, og „dual-band wi-fi“ (tveggja rása þráðlaust netsamband), sem tryggir háhraðasamband þegar verið er að vafra á ferðinni.

Fáguð hönnun þessa snjallsíma kemur einnig vel í ljós þegar kveikt er á honum. PRADA-síminn frá LG 3.0 býður upp á sérstaklega hannað notendaviðmót með einstökum svörtum, gráum og hvítum valmyndum og táknmyndum.

Með þessu notendaviðmóti geta notendur nýtt sér nýjustu kosti Android „Gingerbread“-stýrikerfisins, sem þegar er áætlað að uppfæra með nýju stýrikerfi Android: „Ice Cream Sandwich“.

Til að auka enn notagildi símans munu notendur eiga kost á heildarlínu aukabúnaðar fyrir síma frá PRADA, svo sem PRADA-merktri tengikví og handfrjálsum „Bluetooth“-búnaði fyrir eyra. Notendur geta einnig borið PRADA-símann frá LG 3.0 með sér í glæsilegum töskum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is