Dóttirin með á Tískuvikuna í New York

Mynd 1 af 2
Viktoría Beckham með dóttur sína Harper Seven. mbl.is/Cover Media

Viktoría Beckham ætlar greinilega að koma sjö mánaða gamalli dóttur sinni Harper Seven strax á bragðið því hún tók hana með sér á Tískuvikuna í New York sem hefst á fimmtudag.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem dóttirin situr ásamt tískugyðjunni móður sinni á fremsta bekk á stóru tískusýningunum því síðasta haust var hún með henni aðeins tveggja mánaða gömul á kynningum á vor- og sumarlínu Viktoríu Beckham 2012.

Beckham hélt ekki til New York til þess eins að sýna sig og sjá aðra heldur mun hún kynna þar tískulínu sína komandi haust og vetur. Flugu þær mæðgur til New York á þriðjudag og klæddust köflóttum tískufötum í stíl. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is