Hjartamánuður í Bandaríkjunum: Tíska í hjartarauðum lit
Vel þekktar konur, sem oftast sjást ekki á tískusýningarpöllum, sáust innan um fyrirsætur í New York í vikunni. Tilefnið var sérstök tískusýning til styrktar „Heart Truth“-átakinu. En sérstakur hjartamánuður er nú í Bandaríkjunum til að minna fólk á hjartasjúkdóma.
Meðal þeirra sem sýndu á tískusýningunni voru söngkonurnar Chaka Khan og Gloria Estefan. Tískusýningin bar yfirskriftina „Heart Truth Red Dress“ og voru allar konurnar íklæddar klæðnaði í áberandi og fallegum rauðum lit. Í ár er tíunda árið sem „Heart Truth“-mánuðurinn er haldinn en hann er helgaður hjartaheilsu kvenna. Hjartasjúkdómar eru það sem helst dregur bandarískar konur til dauða. Tískusýningunni var ætlað að gefa þau skilaboð að hjartasjúkdóma gætu allir fengið, sama í hvað þeir væru klæddir.
























