Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| Cover Media
| 10.2.2012
| 15:00
Mömmur sýna föt á Tískuvikunni í New York
Sómalska ofurfyrirsætan Iman mun stjórna óvenjulegri tískusýningu á Tískuvikunni í New York 16. febrúar næstkomandi. Sýningin, sem ber heitið Strut: The Fashion Mom Show, er ný af nálinni en þar eru mömmur í hlutverki tískusýningarstúlkna. Frægir hönnuðir gefa fatnað til sýningarinnar, þar með talið Rachel Roy, Rebecca Minkoff, Gap, Tory Burch og Chris Benz.
Iman, sem gift er poppgoðinu David Bowie, segir í viðtal við WWD að verkefnið sé spennandi og höfði mjög til hennar sem tveggja barna móður og fyrrverandi fyrirsætu. Með tískusýningunni er ætlunin að vekja athygli á þeirri staðreynd að mömmur geta auðveldlega klæðst tískufatnaði á viðráðanlegu verði og litið frábærlega út.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























