Of hlédræg fyrir Tískuvikuna í New York

Scarlett Johansson er alltaf glæsileg til fara. stækka

Scarlett Johansson er alltaf glæsileg til fara. DANNY MOLOSHOK

Stórstjörnurnar vestanhafs flykkjast nú á Tískuvikuna í New York til að kynna sér það nýjasta í fatnaði og fylgihlutum. Scarlett Johansson, sem á mikið af glæsilegum tískufötum og er alltaf óaðfinnanlega til fara, ætlar þó að sitja heima enda gerir hún allt til að forðast sviðsljósið og kaus að halda sig fjarri í þetta sinn.

Johansson er lítið gefin fyrir kastljós fjölmiðla og forðast ljósmyndara eins og heitan eldinn. Í viðtali við tímaritið US Weekly upplýsti leikkonan að hún myndi ekki láta sjá sig á Tískuvikunni í New York, það ætti ekki við hana að sitja þar á fremsta bekk.

Tískuvikan í New York dregur jafnan að sér mikinn fjölda fyrirmenna úr heimi tísku og kvikmynda og meðal þeirra sem sátu í fremstu röð í síðastlitið haust voru Kate Moss, Kristen Stewart og Emma Roberts.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is