Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| Cover Media
| 10.2.2012
| 0:10
| Uppfært
1:31
Skrifar bók um glímuna við þunglyndi
Fyrirsætan Paulina Porizkova situr nú við og skráir endurminningar sínar. Þar mun hún ekki aðeins segja frá viðburðaríku lífi sínu í heimi tískunnar heldur einnig fjalla um glímuna við kvíða og þunglyndi.
Porizkova hefur talað mjög opinskátt um andlega erfiðleika sína og vandamál tengd notkun þunglyndislyfja og meðal annars skrifað greinar um málið í blaðið Huffington Post.
Í viðtali við New York Post kveðst fyrirsætan vona að hún eigi hvorki eftir að valda sjálfri sér né fjölskyldunni óþægindum með því að segja sögu sína á bók.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























