Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| mbl
| 13.2.2012
| 20:08
| Uppfært
20:23
Það sést ekkert á Angelinu Jolie
Leikarahjónin Angelina Jolie og Brad Pitt eiga von á öðrum tvíburum. Fyrir eiga þau sex börn, þar af tvíburana Knox og Vivienne sem eru 3 ára. Jolie er komin fjóra mánuði á leið og þegar hún mætti á frumsýningu myndar sinnar, In the Land of Blood and Honey, á kvikmyndahátíðinni í Berlín var ekki að sjá að hún gengi með börn.
Systkinin Maddox, 10 ára, Pax, 8 ára, Zahara, 7 ára, Shiloh, 5 ára, og Knox og Vivienne, 3 ára, eru ánægð með komu tvíburanna. Tímaritið OK! greinir frá því að Jolie gangi með tvíburastráka.
Berlínarhátíðin skipar stóran sess í hjarta Jolie því In the Land of Blood and Honey er fyrsta kvikmyndin sem hún skrifar handrit að og leikstýrir.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























