Victoria Beckham á tískuvikunni í New York

Mynd 1 af 19
Haustlína Victoriu Beckham 2012. Bebeto Matthews

Victoria Beckham sýndi góða takta á tískuvikunni í New York í gær þar sem haustlína hennar 2012 var frumsýnd. Það er nettur stríðsárabragur á línunni. Lögð er aðaláhersla á mittislínuna sem þýðir bara eitt. Þær sem ætla að klæðast samskonar kjólum í haust verða að vera öflugar í plankaæfingunum og styrkja miðjuna. 

Fötin í línu Beckham eru ákaflega vel sniðin og falleg. Þau sýna vel kvenlegar línur sem eru svo heillandi. Hún tók hermannaklossana og færði þá upp á annað plan á tískusýningunni. Auk þess notaði hún ökklaskó á sjarmerandi hátt. Það er vandasamt að vera í ökklaskóm við kjól því það styttir fótlegginn, en með því að fara í hnésokka undir lengist fótleggurinn og það gengur betur upp við kjóla og pils.

Fötin voru ekki bara falleg á sýningunni heldur heildarútlitið. Förðunin var látlaus og voru flestar fyrirsæturnar með rauðar varir og lítið máluð augu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is