Gerðu vel við sig á Balthazar í New York

Mynd 1 af 2
David og Victoria Beckham yfirgefa Balthazar í New York.

David Beckham bauð eiginkonu sinni, Victoriu Beckham, út að borða á Balthazar í New York eftir tískusýninguna. Með í för var Harper Seven Beckham.

Ljósmyndararnir þyrptust að Beckham-hjónunum þegar þau yfirgáfu staðinn. Hjónin voru eins og klippt út úr tískublaði. Hann í vel straujuðum jakkafötum og hún í svörtum níðþröngum kjól úr haustlínu sinni og í Christian Louboutin-skóm við.

Veitingastaðurinn Balthazar er á Spring Street í SoHo-hverfinu í New York og afar vinsæll á meðal fræga fólksins. Staðurinn er svolítið gamaldags með dökkum innréttingum og hvítum flísum á sumum veggjunum.

Þess má geta að staðurinn er frægur fyrir béarnaise-sósu sína og sumir koma gagngert á veitingastaðinn til að smakka hana. Ein af þeim er snyrtivörudívan Bobbi Brown.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is