Er Beckham að stæla Ellu og Spaksmannsspjarir?
Í haustlínu Victoriu Beckham 2012 er kjóll sem er nauðalíkur kjól frá íslenska tískumerkinu Ellu. Nýjasta hönnun Beckham minnir þó ekki bara á kjólinn frá Ellu því beltið við hann er nauðalíkt beltunum frá Spaksmannsspjörum sem hafa verið geysivinsæl síðustu ár.
Eini munurinn á þessum kjólum er að kjóll Beckham er með vösum að framan en sniðið er nánast það sama. Þegar Smartland hafði samband við Elínrósu Líndal, eiganda Ellu, sagði hún að hugmyndir ferðuðust og það væri ekkert skrýtið að hönnuðir væru með svipaðan þankagang.
„Ég held að stundum vakni sömu hugmyndir á fleiri en einum stað í heiminum. Tískan er spegilmynd þess efnahagslega ástands sem við lifum í hverju sinni. Victoria Beckham og hennar fólk fer ótroðnar slóðir að mínu viti - en líkt og ELLA að nota klæðskurðaraðferðir sem eiga uppruna sinn frá fimmta áratug síðustu aldar,“ segir Elínrós.
























