Keypti Miu Miu og Prada í New York
Victoria Beckham á aldrei nóg af fötum að því er virðist. Nýjasta tískulína hennar, haustlínan 2012, fékk frábærar viðtökur á tískuvikunni í New York sem nú stendur yfir og hélt frú Beckham upp á góðan árangur með því að bregða sér í tískubúðir.
Viktoría hefur átt mikilli velgengni að fagna sem fatahönnuður og á tískuvikunni í New York kynnti hún 8. fatalínu sína. Gagnrýnendur tóku haustlínunni 2012 afar vel, sem er undir greinilegum áhrifum frá tísku stríðsáranna, og hrósuðu Beckham í hástert fyrir glæsilega hönnun. Að lokinni vel heppnaðri tískusýningu dreif Viktoría sig í verslunarleiðangur í miðborg New York og keypti sér það nýjasta frá Miu Miu og Prada.
Eiginmaður kryddpíunnar fyrrverandi, knattspyrnustjarnan Davíð Beckham, sótti tískuvikuna ásamt konu sinni og er það í fyrsta sinn sem hann lætur sjá sig á þessum stórviðburði í heimi tískunnar. Brá hann myndavél á loft og myndaði haustlínu eiginkonunnar og sást síðar á tali við Önnu Wintour, ritstjóra ameríska Vogue. Ekki þarf fjörugt ímyndunarafl til að giska á hvert var umræðuefnið.
Haft er eftir Davíð í breska dagblaðinu Telegraph að nýja tískulína Viktoríu sé bæði glæsileg og kynþokkafull. Hann hafi notið tískusýningarinnar og þess að fylgja konu sinni eftir á Tískuvikuna í New York í fyrsta sinn og sjá með eigin augum hversu hart hún leggur að sér.
























