Kolfinna sýndi fyrir Marc Jacobs

Mynd 1 af 20
Kolfinna Kristófersdóttir er hér lengst til vinstri í stríðsáralegum kjól með hatt. mbl.is/Samsett mynd

Fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir sýndi hausttískuna 2012 fyrir hönnuðinn Marc Jacobs á tískuvikunni í New York.

Marc Jacobs er eitt af aðalnúmerum tískuvikunnar í New York og er mikill heiður að fá að sýna fyrir hann. Kolfinna er þekkt hérlendis en hún hefur verið á samningi hjá Eskimo models. Í fyrra skrifaði hún undir samning við Next, sem er ein stærsta fyrirsætuskrifstofa Bretlands.

Lína herra Jacobs fór vel í áhorfendur. Rauði liturinn er áberandi í bland við svartan og gráan. Mikið er um stríðsáralega kjóla með plíseruðum pilsum og svo virðist sem sokkar séu að koma inn aftur því fyrirsæturnar voru flestar í ökklaskóm og sokkum. Victoria Beckham sýndi einmitt samskonar takta fyrir nokkrum dögum þegar hún kynnti haustlínu sína 2012.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is