Pæjumánuður hjá RÚV-skvísum

Mynd 1 af 4
Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Ástríður Viðarsdóttir og Erla Tryggvadóttir taka pæjumánuðinn alvarlega. Árni Sæberg

Útvarpskonurnar á Rás 1 og 2 halda pæjumánuðinn hátíðlegan og hafa mætt í vinnuna í sínu fínasta pússi. Í lok mánaðarins ætla þær að fagna með kampavíni.

„Hugmyndin kom til þegar við nokkrar útvarpsskvísur vorum að bölva veðrinu og skammdeginu. Og hvað maður væri nú frekar ólekker á þessum tíma árs en Guðrún Gunnarsdóttir útvarpskona sýndi nú heldur betur fram á að það væri nú bara alls ekki rétt. Því hún mætti eins og drottning í vinnuna fyrr um morguninn og sýndi fram á að veðrið væri nú alls engin afsökun,“ segir Erla Tryggvadóttir, útvarpskona á Rás 1.

„Í framhaldinu stakk Gerður Jónsdóttir upp á því hvort þetta væri þá ekki tilefni til þess að snúa við blaðinu og blása til pæjumánaðar hérna á RÚV; starfsfélögunum og auðvitað okkur sjálfum til ánægju og yndisauka. Þessari hugmynd var auðvitað tekið fagnandi og við, ég og Sigurlaug Margrét Jónasdóttir, Guðrún Gunnarsdóttir, Hrafnhildur Halldórsdóttir og Gerður Jónsdóttir, mættum auðvitað daginn eftir eins og drottningar. Fiskisagan flaug fljótt hér innandyra og þar næsta dag tóku Ástríður Viðarsdóttir og Guðrún Dís Emilsdóttir fagnandi þátt í pæjumánuðinum og mættu eins og drottningar í vinnuna. Og svo hafa auðvitað fleiri skvísur bæst í hópinn sem gerir þetta auðvitað enn skemmtilegra,“ segir Erla.

Hún segir að pæjumánuðurinn hafi lífgað upp á skammdegið og þær stöllur hafi skemmt sér stórkostlega vel.

„Hugmyndin er að gera skammdegið örlítið skemmtilegra og þess ber að geta að hlátrasköllin og pískrin hafa margfaldast hérna hjá okkur.
Hér er öllu tjaldað til: Við mætum í okkar fínasta pússi, með varalit og skinnkraga, í kjólum og guð má vita hvað. Við Silla (Sigurlaug Margrét Jónasdóttir innsk.bl.) fórum meira segja í leikmunadeild Sjónvarpsins til þess að finna einhverja leikmuni sem gætu minnt gesti og gangandi á pæjumánuðinn og gætu á einhvern hátt hyllt kvenleikann í leiðinni. Og auðvitað fundum við slíka muni á leikmunadeild Sjónvarpsins þar sem allt má finna því við rákumst á flennistóra eftirprentun af fæðingu Venusar sem við komum fyrir hérna hjá Rás 1 og 2. Svo fundum við tvo forláta fifties hárblásara á standi; svona hárblásara sem mátti finna á öllum betri hágreiðslustofum fyrir fáeinum áratugum,“ segir hún.

Fagna með kampavíni

„Nú er aðalmálið að missa ekki niður dampinn. Við verðum að klára mánuðinn með bravúr og hápunkturinn verður svo í lok mánaðar þegar við fögnum eins og sönnum pæjum sæmir; með kampavíni. Við höfum strax fundið fyrir áhuga á pæjumánuðinum meðal vinkvenna okkar á öðrum vinnustöðum. Auðvitað á maður að reyna að gera skammdegið örlítið skemmtilegra - og hvað er betra en að heiðra pæjuna í okkur öllum í leiðinni? Ég tala nú ekki um að hlæja örlítið meira með vinkonunum í vinnunni sem auðvitað bætir, hressir og kætir allar pæjur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is