Björk og Birkir á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn
Danski skóframleiðandinn Shoe the Bear bauð upp á íslenska birkilíkjörinn Björk og birkisnafsinn Birki í kynningarpartíi á dýrustu strigaskóm í heimi á Tískuvikunni í Kaupmannahöfn.
Copenhagen Fur, sem er stærsti styrktaraðili hátíðarinnar, hefur í samstarfi við Shoe the Bear og danska tónlistarmanninn Jokeren hannað eina dýrustu strigaskó í heimi. Skórnir eru gerðir úr minkaleðri, framleiddir í afar takmörkuðu upplagi og eru metnir á um 1.500 evrur.
Kynningarpartíið var haldið fyrir 60 blaðamenn og tískubloggara víðs vegar að úr heiminum og vakti íslenska birkiáfengið mikla athygli gestanna. Sérstaklega voru veislugestir ánægðir með Björk í tonic eða B&T. Venjan er að bjóða upp á kampavín í slíkum boðum og kom því íslenska áfengið skemmtilega á óvart.
Foss distillery, sem framleiðir Björk og Birki, hefur að undanförnu fengið fjölda fyrirspurna um dreifingu og sölu að utan. Enn sem komið er er birkiáfengið einungis fáanlegt á Íslandi.
Verslunin GK á Laugavegi selur skófatnað Shoe the Bear á Íslandi en óvíst er hvort minkaleðrið verður til sölu þar.
























