Sigga Heimis hannar skinnlínu fyrir Varma

Mynd 1 af 4
Iðnhönnuðurinn Sigga Heimis hefur hannað nýja skinnalínu fyrir Varma. Kristinn Ingvarsson

Iðnhönnuðurinn Sigga Heimis er þekkt fyrir hönnun sína á heimilisvörum. Nú kveður við annan tón því hún er hönnuður nýrrar skinnalínu frá Varma sem státar af veskjum, lúffum, húfum, treflum, vestum auk heimilislínu. 

Í heimilislínunni eru púðar, teppi, inniskór, sessur og kollar. Varma er iðnfyrirtæki sem er þekkt fyrir prjónavörur sínar en hefur þó framleitt mokkavörur í fjöldamörg ár. Hönnun, hugvit, framleiðsla og hráefni er íslenskt og unnið af Íslendingum.

Íslenskur skinnaiðnaður hefur eflst undanfarin ár, en ennþá er mest til útflutnings því um 85% af öllum gærum eru fluttar út og meirihlutinn óunninn.  Skinnin þykja afbragðsgóð og kaupa mörg nafntoguð tískumerki íslenskar gærur frá Skinnaiðnaði og nota í framleiðslu sína.

Markmið Varma er að auka framleiðslu úr íslensku mokkaskinni m.a. með útflutning í huga. Það liggja töluverð verðmæti í því að vinna þetta skemmtilega hráefni hér á landi og selja úr landi sem fullunna söluvöru. Íslenskar mokkavörur eru mjög hlýjar og ekki vanþörf á slíkum vörum í vetrarhörkum eins og í vetur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is