Björk tískufyrirmynd Knowles
Solange Knowles, litla systir Beyoncé, segir í viðtali við Fox 17 að Björk Guðmundsdóttir sé tískufyrirmynd sín. Sjálf er ungfrú Knowles með puttana á púlsinum þegar kemur að tísku og í viðtalinu kemur fram að hún sé í rauðu prjónapilsi frá Missioni og í gulri skyrtu frá Alexander Wang. Við þetta klæðist hún kápu með tígrisdýramunstri frá danska hönnuðinum Malene Birger. Hún er með appelsínugulan varalit frá MAC.
Knowles var unglingur þegar systir hennar, Beyoncé, sló í gegn með Destiny's Child. Hún fékk að þvælast með henni og þannig kviknaði áhuginn á tónlist. Síðan þá hefur hún leikið í nokkrum bíómyndum og sjónvarpsþáttum. Þegar hún var 17 ára giftist hún æskuástinni sinni, Daniel Smith, og eignaðist með honum son. Því miður entist sambandið ekki og þau skildu 2007.
Knowles hefur unnið að tónlist í nokkur ár en er þar að auki vinsæll plötusnúður. Auk þess heldur hún úti bloggi fyrir breska Vogue.
Stíll Knowles er litríkur og heillandi. Hún var mynduð á tískuvikunni í New York á sýningu Diane von Furstenberg.
„Öll fötin mín eru mjög litrík. Þegar ég opna fataskápinn minn hugsa ég stundum með mér að ég sé snarklikkuð,“ segir Knowles, sem elskar föt frá Dries Van Noten og Marni.
Þegar hún er spurð út í tískufyrirmyndir sínar nefnir hún hina íslensku Björk Guðmundsdóttur.
























