Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| Morgunblaðið
| 18.2.2012
| 22:30
Ögrandi sundfatafyrirsætur loka mörkuðum
Sú tímaritaútgáfa sem jafnmesta athygli vekur á hverju ári er það tölublað Sports Illustrated sem helgað er baðfötum. Eins og gefur að skilja eru heimsins föngulegustu fyrirsætur fengnar til að klæðast fötunum og því lítil furða að blaðið er rifið út með látum. Ýmislegt er gert á hverju ári til að vekja athygli á útgáfunni og í ár var farin sú nýstárlega leið að láta dömurnar hringja bjöllunni sem tilkynnir dagslok í kauphöll New York-borgar á Wall Street. Líklegt er þó að bjölluhljómurinn hafi minnt mannskapinn á að haska sér í næsta blaðsölustað til að næla sér í eintak. Þær Irina Shayk, Crystal Renn, Michelle Vawer og Nina Agdal hafa alltént ekki latt starfsmenn kauphallarinnar til þess að grípa eintak á leiðinni heim.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























