Í skósíðum kjól út í sumarið

Mynd 1 af 8
Andrea Magnúsdóttir. Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Morgunblaðið Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is

Vor- og sumarlína Andreu Magnúsdóttur fatahönnuðar einkennist af alls kyns mynstrum, björtum litum og sniðum í anda sjöunda áratugarins. „Kjólar eru skósíðir og mikið um kögur, borða, skábönd og skrautstykki í neonlitum,“ segir Andrea sem rekur kvenfataverslunina AndreA boutique við Strandgötu í Hafnarfirði. „Íslenskar konur klæða sig upp til hópa vel; þær eru sjálfstæðar og þora og ég hanna fyrir þær.“

Og hún heldur áfram: „Sjálf klæði ég mig fyrst og fremst þannig að mér líði vel. Fötin þurfa að vera flott og þægileg og ég legg mikið upp úr því í minni hönnun. Yfirleitt er ég í einhverju eftir sjálfa mig þannig að þetta er oftast auðvelt. Þegar ég fer út á kvöldin bæti ég alltaf einhverju við, skarti eða skinni, reyni að mála mig aðeins öðruvísi þó að ég sé íhaldssöm í þeim efnum, fer í hærri hæla og jafnvel skósíðan pels. Þá finnst mér líka alltaf skemmtilegast að vera í einhverju litríku, ekki endilega alltaf í svörtu.“

Gerum allt sjálf

Andrea lauk námi í fatahönnun frá Margrethe-Skolen í Kaupmannahöfn vorið 2009 og dúxaði á lokaprófi. Strax að loknu námi flutti hún aftur heim ásamt eiginmanninum Ólafi Ólasyni, sem er menntaður grafískur hönnuður og leggur stund á mastersnám í arkitektúr. Um haustið opnuðu þau verslunina AndreA boutique í Hafnarfirði en ári áður höfðu þau stofnað saman hönnunarfyrirtækið Artwerk. Vinnustofa þeirra er í næsta nágrenni við verslunina en þau vilja færa sig enn nær viðskiptavinunum og hyggjast flytja vinnustofuna yfir í Strandgötu skammt frá búðinni í lok mánaðarins.

„Við Óli gerum allt sjálf,“ segir Andrea. „Hann sér um allan reksturinn en ég einbeiti mér að því að hanna, sníða og þjónusta viðskiptavini okkar. Á föstudögum bætum við nýjum vörum í verslunina og þá afgreiði ég sjálf í búðinni. Mér finnst það gaman og gefandi og nauðsynlegt til að vera í góðu sambandi við kúnnana. Þannig veit ég hvað virkar og hvað ekki og breyti flíkum ef með þarf í samræmi við óskir viðskiptavinanna. Ég passa að hanna aldrei mikið af því sama og geri eitthvað nýtt í hverri viku.“

Varkár í peningamálum

Aðspurð segir hún reksturinn ganga mjög vel, í raun mun betur en þau höfðu þorað að vona. „Við önnum varla eftirspurn. Við höfum vaxið jafnt og þétt frá stofnun fyrirtækisins og það hlýtur að teljast ágætur árangur í þessu árferði. Ég hef unnið lengi í tískubransanum og í gegnum árin eignast minn kúnnahóp. Þegar kom að því að ég opnaði mína eigin verslun bjó ég að því að vera vel tengd. Konurnar héldu áfram að koma til mín. Ég er óendanlega þakklát því ég á svo frábæran hóp viðskiptavina. Konurnar sem versla hjá mér og koma aftur og aftur eru mín besta auglýsing.

Lykillinn að velgengninni er frábært starfsfólk, bæði á vinnustofunni og í versluninni. Auðvitað skiptir miklu máli að við Óli erum bæði mjög varkár í peningamálum og í raun má segja að við höfum farið þetta í hænuskrefum. Við höfum ekki tekið nein lán og skuldum ekkert. Við söfnuðum okkur fyrir fyrstu saumavélinni og svo fyrir þeirri næstu og höfum ekki keypt neitt nema eiga fyrir því.“

Sýnileg á Facebook

Spurð út í auglýsinga- og kynningarmálin segir Andrea þau leggja höfuðáherslu á að vera vel sýnileg á Facebook og jafnframt halda úti góðum vef þar sem hægt er að skoða vöruna og panta. „Facebook er ótrúlega áhrifaríkur ókeypis auglýsingamiðill og við notum hann mjög mikið. Við höfum aldrei auglýst neitt í fjölmiðlum heldur höldum úti góðri Facebook-síðu ásamt lifandi og skemmtilegum vef sem er sambland af blogg- og vefsíðu.“ Andrea og Ólafur eiga tvö börn, Magnús Andra þrettán ára ára og Ísabellu Maríu sex ára. Hún segir náið samstarfið ekki vera álag á hjónabandið eða fjölskyldulífið. „Okkur Óla finnst gott að vera saman og við erum rosalega samstillt. Við erum saman í vinnunni allan daginn og setjumst niður á kvöldin þegar börnin eru komin í rúmið og höldum áfram, köstum á milli hugmyndum og skipuleggjum næstu skref. Starfið er svo ótrúlega skemmtilegt og það hefst ekkert nema leggja hart að sér. Auðvitað vinnum við stundum alltof mikið en það stendur til bóta.“

Ný barnafatalína

Artwerk kynnti nýlega til sögunnar nýja barnafatalínu, Mínímí, í samvinnu við Magndísi A. Waage fatahönnuð.

Nýjan línan er fyrir stelpur á aldrinum tveggja til tólf ára og hefur fengið mjög góðar viðtökur að sögn Andreu. Er hún seld bæði í AndreA boutique og Barnabúðinni á Laugavegi.

„ByBlack er svo nýtt merki sem við erum að vinna samhliða hinum. Merkið getur verið hvað sem er. Núna erum við t.d. að vinna með Basic ByBlack; chiffon-toppa, skyrtur, hlýraboli og undirkjóla sem eru í okkar anda og passa fullkomlega með AndreA-línunni. ByBlack er í raun alhliða merki fyrir flíkur og fylgihluti. Með nýja merkinu höldum við öllu opnu fyrir allskonar möguleika í framtíðinni.“ Andrea segir mikilvægt að sofna ekki á verðinum þó að vel gangi. „Við vitum að hlutirnir geta breyst mjög hratt. Því er nauðsynlegt að vera alltaf á tánum, halda áfram að vera skapandi og gleyma sér aldrei.“ Andrea Magnúsdóttir: „Íslenskar konur eru sjálfstæðar og þora og ég hanna fyrir þær.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is