Konan með kynlausa stílinn
Bergljót Friðriksdóttir beggo@mbl.is
Á hátíð Bresku tískuverðlaunanna sem fram fór í lok nóvember hlaut Alexa Chung viðurkenningu fyrir glæsilegasta fatastílinn 2011 en valið fór fram meðal almennings í Bretlandi. Verðlaunin komu engum á óvart.
Chung þykir vera mikill áhrifavaldur í tískuheiminum en hún hefur einstakan stíl, ólíkan öllum öðrum. Tískuframleiðandinn Mulberry sá ástæðu til að nefna handtösku eftir henni og Karl Lagerfeld státar sig af því að vera góður vinur. En hver er hún og hvernig varð hún á skömmum tíma stórt nafn í heimi tískunnar.
Blandar öllu saman
Alexa Chung er 28 ára gömul, fædd og uppalin í Bretlandi.
Móðir hennar er bresk en faðir hennar hálfkínverskur. Hún var uppgötvuð 16 ára af umboðsskrifstofunni Storm og varð strax eftirsótt fyrirsæta. Chung hefur nú lagt fyrirsætustörfin á hilluna og snúið sér að þáttastjórn í sjónvarpi, auk þess að vera fastapenni hjá breska tískublaðinu Vogue. Hún lætur sig aldrei vanta á hátískusýningarnar og situr þar jafnan í fremstu röð. Chung hefur komið víða við á sviði tískunnar en nýjasta verkefnið er stjórn fatahönnunarþáttarins 24 Hour Catwalk á bandarísku sjónvarpsstöðinni Lifetime sem hóf göngu sína í byrjun janúar.
Chung vekur athygli hvar sem hún kemur. Hún hefur þróað sinn sérstaka stíl og raðar saman flíkum sem öðrum dytti ekki í hug að blanda saman; ólíkum litum, mynstrum, efnum og sniðum. Tískugyðjan er alltaf óaðfinnanlega klædd og virðist ekki hafa neitt fyrir því að líta vel út. Oft er eins og hún hafi valið flíkurnar úr fataskápnum af handahófi en vitaskuld er það ekki svo. Ekkert er tilviljun þegar Alexa Chung á í hlut.
Hneppir upp í háls
Stíll Chung er strákslegur en um leið kvenlegur. Hún er ekkert fyrir flegna toppa og kýs miklu frekar að hneppa skyrtum upp í háls, setja upp slaufu og flagga löngum leggjunum klædd stuttbuxum. Chung er aldrei mikið máluð og hárið er alltaf frjálslegt. Þegar hún þarf að koma fram opinberlega hefur hún ekkert á móti því að sýna sig í látlausum kjól en dagsdaglega heldur hún sig aðallega við strákslegt útlitið.
Chung var nýlega gestur þáttarins Fashion Police á bandarísku sjónvarpsstöðinni E! Í viðtali við stjórnandann, Joan Rivers, sagðist hún neita að klæða sig kvenlega, samkvæmt staðlaðri ímynd. „Ég vel mér ekki föt til að ganga í augun á karlmönnum,“ sagði tískudrottningin. „Ég fer í það sem mér finnst fallegast og líður best í, óháð kvenímyndinni.“ Hvatti Chung allar konur til að hugsa út fyrir rammann, gefa ímyndunaraflinu lausan tauminn og skapa sér sinn eigin stíl.
























