16 dagar í Marni-línuna fyrir H&M
Hápunktarnir í sænska móðurskipinu H&M eru vafalaust þegar línur frá þekktum hönnuðum koma í hús. Eftir 16 daga kemur línan frá ítalska hönnuðinum Marni í verslanir H&M. Hönnuður línunnar er Consuelo Castiglioni, sem er ítalskur fatahönnuður. Hún hefur ákaflega næmt auga fyrir litum, munstrum og sniðum og er flínk í að blanda saman ólíkum efnum án þess að það verði eitt allsherjar klúður.
Marni línan frá H&M virðist vera í vandaðri kantinum og af myndunum að dæma mætti ætla að kjólarnir og peysurnar færu vel á íslenskum kroppum. Mikið er lagt í smáatriði línunnar og er mittislínan enn og aftur í forgrunni. Í línunni er dásamlegur pallíettukragi sem frískar svo sannarlega upp á hvaða flík sem er.
Það vantar allan Hawaii-fíling í línuna og litapallettan er dálítið haustleg. Þær sem þekkja Marni vita þó að þetta er ekta hún. Það gefur til kynna að línan sé alveg að virka og sé heiðarleg. Ekki bónusútgáfa af merkinu sjálfu sem er alltaf hættan þegar frægir hönnuðir hanna fyrir lágvöruverslanir.
Í gærkvöldi var Marni línan fyrir H&M kynnt í Los Angeles. Þangað mættu stjörnurnar Drew Barrymore, Winona Ryder og Milla Jovovich svo einhverjar séu nefndar.
























