Hver er arftaki Steve McQueen?
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
En nú gæti arftakinn mögulega verið fundinn. Steve McQueen lék iðulega hörkutól í myndum sínum, en þó aldrei harðhausa. Þar fór sjaldnast maður margra orða eða óþarfa hávaða, heldur bar hann sig með yfirvegaðri reisn, tók á því sem taka þurfti á án þess að depla sínum ísbláu augum, og leit allan tímann út eins og milljón dollarar. Einu gilti hvort hann klæddist leðurjakka og gallabuxum, sportlegum hversdagsfatnaði eða jakkafötum með vesti, allt virkaði eins og það hefði verið hannað með einmitt hann í huga.
Ómeðvitaður um hve svalur hann var
Eftir á að hyggja má leiða líkum að því að McQueen hafi einfaldlega litið óaðfinnanlega út af því að hann var á sinn kæruleysislega hátt fullkomlega ómeðvitaður um hve svalur hann var. Hann hvorki reyndi né rembdist – hann bara var. Og ef einhver efast um að töffaraskapurinn hafi náð út fyrir bíómyndirnar hvað hann varðar, þá keppti hann í kappakstri í frístundum og sagðist hvergi slaka vetur á en í bíl sem nálgaðist 300 km hraða á klst. Ótímabært fráfall hans af völdum lungnakrabba, sem ætti í sjálfu sér að vera öllum óræk sönnun þess að sígarettur eru yfirgengilega ósvalar, gerði það að verkum að vandfyllt skarð varð til í Hollywood, og í veröldinni yfirleitt. Burtséð frá því hversu fáránlega vel kappinn tók sig út á hvíta tjaldinu var hann einstaklega smekklega klæddur í einkalífinu og fara margir sjarmörar nútímans flatt á því. Það er ekki nóg að vera vel til fara á hvíta tjaldinu ef þú ert eins og útigangsmaður hversdags.
Tveir leikarar gera tilkall
Tveir leikarar gera í seinni tíð nokkurt tilkall til þess að geta talist arftakar Steve McQueen. Annar þeirra er Bondleikarinn Daniel Craig. Þeir eiga sameiginlegt ljóst hárið, ísblá augun og svo er Craig flestum mönnum betur klæddur frá degi til dags. Þar fyrir utan fer hann jú með svalasta hlutverk sem heimur kvikmyndanna býður upp á, sjálfan 007. Hinn er Ryan Gosling. Býsna flinkur við að klæða sig sömuleiðis, óhræddur við að fara eigin leiðir án þess að villast út í afkáraskap, og svo verður að segjast að hlutverk hans í hinni frábæru mynd Drive er bókstaflega eins og skrifað fyrir Steve McQueen. Svo líkast til má segja að kappið (eða kappaksturinn) um McQueen-krúnuna sé hafið milli þessara tveggja stællegu töffara. Herrar mínir, ræsið vélarnar.
























