Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| mbl
| 21.2.2012
| 15:00
Lést á tískusýningu
Tískupæjan og samkvæmisljónið Zelda Kaplan lést á Tískuvikunni í New York þann 15. febrúar síðastliðinn. Kaplan var ein af skrautfjöðrum New York-borgar og var fastur gestur á opnunum, tískusýningum og frumsýningum. Kaplan, sem var 95 ára, mætti á tískusýningu til Joanne Mastroianni en náði því miður ekki að klára tískusýninguna. Sýningin fór fram í Lincoln Center í New York. Hún sat á fremsta bekk þegar hún hneig niður. Farið var með hana á Roosevelt-spítalann þar sem hún lést.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























