Sir Philip Green á Burberry-tískusýningu
Christopher Bailey, hönnuður Burberry, átti stjörnuleik þegar hann sýndi næstu haust- og vetrarlínu á tískuvikunni í Lundúnum. Hann sækir innblástur í fyrri tíma og sýnir hvernig slaufubelti passa hreinlega við allt.
Undirrituð er ákaflega hrifin af slaufubeltum og fjárfesti í einu slíku frá D&G í fyrra. Það fór ekki mikið fyrir því slaufubelti í hönnunarheiminum en nú virðist snillingurinn hann Bailey vera búinn að fatta hvað virkar. Mittislínan skiptir öllu máli og er aðaláhersla Baileys. Þær mittismjóu kvarta svo sem ekkert yfir því. Það er þó annað sem vekur athygli og það er að jakkar og kápur víkka svolítið fyrir neðan mitti sem gera flíkurnar klæðilegar fyrir þær sem vilja „fela“ neðra magasvæðið.
Þrátt fyrir að vera svolítið í beltum og krúsídúllum, flóknum smáatriðum og stuði er línan mjög heiðarleg. Breski hefðarkonustíllinn er ekki langt undan og það er gaman að sjá vaxjakka sem búið er að gera örlítið kvenlegri án þess að jakkinn tapi sínum upprunalega sjarma. Litapallettan í línunni er svolítið stríðsáraleg. Mikið um brúna og græna tóna sem passa vel við grátt, rústrautt og ljósa liti.
Kvenpeningurinn á að vera í pilsum og eru þau ýmist níðþröng og hnésíð eða hnésíð með svolítilli vídd. Jakkarnir eru vel sniðnir og lekkerir og svo eru kápurnar mjög vandaðar.
Það voru þó ekki bara kvenföt á þessari tískusýningu því herrarnir fengu að vera með. Það er dálítill sveitastrákafílingur á herralínunni (þó alls ekki á neikvæðan hátt). Niðurmjóar buxur halda áfram að vera inni hjá herrunum og Bailey vill hafa þá í hnésíðum vel sniðnum frökkum úr tweed-efni og auðvitað vaxjökkum og vatteruðum jökkum.
Það er kannski fullsnemmt að hlakka til haustsins en ef hausttískan í heild sinni verður á þennan hátt má það alveg.
























