Smartland Mörtu Maríu
|
Tíska
| Morgunblaðið
| 21.2.2012
| 18:00
Tískan gegnum tíðina
Mynd 1 af 12
Á Þjóðminjasafni Íslands var opnuð um síðustu helgi alveg stórskemmtileg sýning sem ber nafnið TÍZKA - kjólar og korselett. „Kjólarnir á sýningunni koma úr safni Þjóðminjasafnsins og frá einkaaðilum. Kjólarnir sem hafa
borist safninu eru ýmist stakir eða hluti af stærri heild.
Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður er höfundur sýningarinnar. Hún segir að þetta sé vanrækt tímabil í Íslandssögunni, sem mikilvægt sé að skrásetja betur. „Þetta er nánast óskrifað blað í sögunni og það hefur lítið verið hugsað um þennan þátt í sögunni. Þetta er búið að vera mikill lærdómur,“ segir Steinunn, sem vann að sýningunni í samvinnu við Ágústu Kristófersdóttur
sýningarstjóra. Ómar Óskarsson
Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is
Litagleði og gullfalleg snið einkenna kjólana á sýningunni og er um sannkallaðan stórviðburð að ræða, bæði fyrir þá sem hafa áhuga á tísku og eins þá sem hafa einfaldlega áhuga á hönnunarsögu 20. aldar. Það er Steinunn Sigurðardóttir sem er höfundur sýningarinnar, og vann hún sýninguna ásamt Ágústu Kristófersdóttur sýningarstjóra.
Myndirnar tala sínu máli um þann glæsileika sem sýningin státar af en sjón er sögu ríkari og því rétt að hvetja alla að kíkja í Þjóðminjasafnið og skoða sýninguna, sem stendur yfir til 28. ágúst nk.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
























