Fágun og glæsileiki hjá Gucci

Mynd 1 af 36
Haust-og vetrarlína Gucci 2012. ALESSANDRO GAROFALO

Ítalska tískuhúsið Gucci sýndi haust- og vetrarlínu sína á tískuvikunni í Mílanó í gær. Hönnuður Gucci-línunnar, Frida Giannini, fangaði stemningu fyrri tíma. Retró og glamúr sameinast í línunni þar sem dökkir og djúpir litir eru ríkjandi. Línan er kynþokkafull og glæsileg á sama tíma. Blúndur koma við sögu og gegnsæ efni, sem fer vel á tískupöllunum en er kannski ekki besta hugmyndin í raunveruleikanum.

Tískusýningardömurnar löbbuðu fram á hnausþykku vínrauðu teppi og var stemningin eins og á gamalli koníaksstofu.

Í línunni er töluvert um skósíða kjóla sem Hollywood-stjörnurnar eiga án efa eftir að klæðast á rauða dreglinum. Flöskugræni kjóllinn sem tekinn er inn í mittið mun án efa slá í gegn ásamt svarta skósíða blúndukjólnum með berri öxl.

Gucci hefur haft það fram yfir marga aðra hátískuhönnuði að búa til fylgihlutalínur sem venjulegar konur hafa getað eignast. Sú lína hefur ekki verið ódýr en þó það klassísk að konur hafa safnað fyrir einum og einum hlut og litið á það sem ákveðna fjárfestingu. Í línunni eru nokkrar ákaflega eigulegar töskur og svo eru svörtu leðurstígvélin, með reimunum að framan, algerlega málið. Það vekur athygli að Gucci er lítið í himinháum hælum og platform skóm (sem eru þykkir undir tánni). Það hefur kannski sínar skýringar. Ungpíurnar eru kannski ekki stærsti kúnnahópur Gucci heldur konur um fertugt sem eiga smá aur í buddunni. Þessum hópi finnst ekkert varið í himinháa hæla og myndi frekar vera berfættur en að klæðast platform-skóm. Þetta veit Giannini.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Sophia Loren fyrirmynd Ellu

25.5. „Fyrir hverja línu höfum við valið okkur fyrirmynd og að þessu sinni vorum við undir áhrifum Sophiu Loren í kvikmyndinni Yesterday, Today and Tomorrow.“ Meira »

Skartgripalína Angelinu Jolie

Skartgripahönnuðurinn Angelina Jolie.
24.5. Allur ágóði af sölu Style of Jolie rennur til góðgerðarmála.  Meira »

Íslensk hönnun á tískupöllunum

Helga Björg Steinþórsdóttir.
25.5. Icelandair Hótel Reykjavík Natura er með puttana á púlsinum þegar kemur að íslenskri hönnun og býður gestum og gangandi á tískusýningu alla föstudaga kl. 17.00. Meira »

Annað barn á leiðinni

Gisele Bundchen.
23.5. Ofurfyrirsætan Gisele Bündchen á von á sér á ný.  Meira »
Meira píla
Augnablik - sæki gögn...
Augnablik - sæki gögn...

finnur.is