Tískuráðgjöf á vefnum

Fyrir þá sem vilja fylgjast vel með tískunni og vita hvar þeir geta keypt flíkur og fylgihluti sem þeir sjá í tímaritum og blöðum þá er polyvore.com rétta vefsíðan. Þar eru settar inn síður úr ýmsum tískutímaritum. Til hliðar má sjá fötin á síðunni, hvað þau kosta og hvar þau er hægt að kaupa. Sumt kemur vissulega stundum fram í tískugreinunum en ef ekki þá er þægilegt að hafa allar upplýsingar á einum stað.

Á síðunni er líka veitt tískuráðgjöf og getur fólk sent þar inn spurningar eins og í hverju sé best að vera við þröngar buxur í skærum lit? Eða hvernig skór passi best við rósótta kjólinn sem þú varst að kaupa þér? Polyvore.com er skemmtileg og litrík síða sem getur gefið manni ýmis góð ráð varðandi tísku. Nú fara líka að koma vor- og sumarföt sem er alltaf jafnskemmtilegt eftir veturinn.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál