Ungleg með kavíar í andlitinu

Kavíar hefur góð áhrif á húðina.
Kavíar hefur góð áhrif á húðina.

Snyrtivörulínan Caviar kemur frá Sviss og hefur fengið ákaflega góða dóma. Formúlan er þróuð af reyndu rannsóknarteymi lífefnafræðinga við svissnesku Riveríuna sem einbeitir sér að rannsóknum og þróun innan húðvísindanna.

Fagmennska sem einkennir svissneskar vörur endurspeglast í fágaðri snyrtivörulínu sem státar af vönduðum innihaldsefnum eins og Kavíarþykkni sem hámarkar getu húðarinnar til þess að viðhalda ákjósanlegu rakastigi og mýkt. Kavíarinn örvar náttúrulega getu húðarinnar til að viðhalda heilbrigði og fegurð. Innihaldsefnin í kremlínunni vernda húðina gegn rakatapi, bæta gæði kollagens í húðinni og örvar nýmyndun þess ásamt því að varðveita þéttleika, teygjanleika og ljóma húðarinnar.

Í snyrtivörulínunni er andlitskrem, dagkrem og serum.

Caviar of Switzerland.
Caviar of Switzerland.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál