Spéhræðslan er ekki að trufla Kate Moss og vinkonur hennar á tískusýningu Louis Vuitton í París í dag. Litlu munaði að barmur ofurfyrirsætunnar rynni út úr flegnum kjólnum. Það kom þó ekki í hennar hlut að viðra „tútturnar“ heldur tók önnur það að sér fyrir allan peninginn.
Skvísurnar voru að sýna línu Marc Jacobs fyrir Louis Vuitton þegar kjólarnir fóru á flakk.
Að öllum líkindum var þetta allt skipulagt fyrirfram enda kjóllinn gegnsær og það fleginn að það þurfti engin stórátök til þess að önnur geirvartan gægðist út úr kjólnum.
Svona getur tískuheimurinn verið snar, snar, snar-klikkaður!