Sokkabuxur í anda Mad Men

Sýnishorn af þeim sokkabuxum sem hannaðar eru af Janie Bryant …
Sýnishorn af þeim sokkabuxum sem hannaðar eru af Janie Bryant Leg Couture. Ljósmynd/Janie Bryant Leg Couture

Janie Bryant, sem er konan á bakvið búningana í Mad Men, hefur birt sýnishorn af sokkabuxunum sem hún hefur hannað í anda þáttanna, aðdáendum til mikillar gleði.

Sokkalínan, sem kallast Janie Bryant Leg Couture eða Janie Bryant sokka-hátíska, verður fáanleg á viðráðanlegu verði.

„Ég vildi að konur gætu keypt sokkabuxur sem væru fallega hannaðir með ótrúlegum smáatriðum, en einnig að sokkabuxurnar væru fáanlegar á góðu verði. Þetta er algjörlega spurning um lúxusvöru á viðráðanlegu verði,“ sagði Bryant í samtali við vefsíðuna WWD og bætti við: „Sokka-hátíska er fyrir nútímakonuna, þrátt fyrir að sumar sokkabuxurnar sæki innblástur í gamla tíma, eins og til dæmis sokkabuxur með línu upp kálfana.“

Sokkalínan á nú þegar frægan aðdáanda, leikkonuna Christinu Hendricks, sem er þekktust fyrir hlutverk sitt í Mad Men-sjónvarpsþáttunum. „Ég get ekki beðið eftir því að klæðast sokkabuxum úr Janie Bryant Leg Couture-línunni. Hún er svo frábær hönnuður og veit alveg hvernig á að klæða konur í öllum stærðum og gerðum þannig að þær líti vel út.“  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál