Þetta þarftu að eiga í fataskápnum

Wikipedia

Sumarið er tíminn til að prófa nýja hluti og leyfa sér að vera forvitin og gera tilraunir með fatastíl. Efnin eru léttari og litirnir skærari þegar heitara verður í lofti. Þá er um að gera að taka kjólana og pilsin fram og prófa sig áfram með nýja hluti.

Tímaritið Elle telur upp að minnsta kosti  fimm tískutengda hluti sem nauðsynlegt er að prófa í sumar.

Eftirfarandi vörur verða vinsælar í sumar og virðast fjúka úr búðarhillunum.

1. Magabolir. Stuttir bolir, hvort sem þeir eru litríkir, svartir, …
1. Magabolir. Stuttir bolir, hvort sem þeir eru litríkir, svartir, hefðbundnir, úr leðri eða annað eru þeir tilvalnir fyrir háar buxur eða við pils. Það þarf ekki endilega að láta sjást í naflann ef vera á í magabol en það breytir laginu og brýtur upp fatastílinn að vera í stuttum bol til dæmis við sítt pils. Þessi grái magabolur fæst í Zöru. Ljósmynd/Facebook
2. Axlatöskur. Töskur með síðri ól sem fara þvert yfir …
2. Axlatöskur. Töskur með síðri ól sem fara þvert yfir líkamann verða vinsælar í sumar. Hún frískar upp á hvaða dress sem er og er sæt og sumarleg. Einnig er þægilegt að hafa hana ekki of stóra heldur í minni kantinum og hafa meðferðis aðeins það nauðsynlegasta, þá finnst þér þú líka léttari og áhyggjulausari. Þessar töskur fást í Zöru. Ljósmynd/Zara
3. Útklippt föt. Flíkur sem innihalda úrklippur verða sífellt vinsælli. …
3. Útklippt föt. Flíkur sem innihalda úrklippur verða sífellt vinsælli. Flíkur sem sýna meira, hér og þar, virðast ætla að verða vinsælli með tímanum og sumarið er einmitt tíminn til að gera tilraunir með hvað fari manni vel. Kjóllinn á myndinni er úr Zöru. Ljósmynd/Zara
4. Kögur. Kögur eru nú þegar mjög vinsæl á Íslandi …
4. Kögur. Kögur eru nú þegar mjög vinsæl á Íslandi og víða annarsstaðar og eru ekki á leiðinni að fara neitt. Skór, veski og flíkur með kögri er málið í sumar. Þessi taska fæst í Lindex. Þessi taska fæst í Zöru. Ljósmynd/Zara
5. Neonlitir. Síðast en ekki síst er þetta sumar litríkt …
5. Neonlitir. Síðast en ekki síst er þetta sumar litríkt með björtum neonlitum hvort sem það er gulur, bleikur, grænn eða blár. Þessi neonblái kjóll fæst í Vero Moda. Þessi skærbleika mussa fæst í Indiska í Kringlunni. Ljósmynd/Facebook
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál