Stal senunni í kjól frá Zuhair Murad

Megan Fox.
Megan Fox. mbl.is/AFP

Leikkonan Megan Fox stal senunni á frumsýningu Teenage Mutant Ninja Turtles í Mexíkó í vikunni. Hún mætti í ofurfallegum síðerma kjól frá Zuhair Murad en kjóllinn er úr haustlínu tískuhússins fyrir 2014. Kjóllinn klæddi hana vel og dró fram það besta í fari leikkonunnar. Eitt af því sem hún hefur fram yfir annan kvenpening eru föngulegir fótleggir. Til þess að gera ennþá meira fyrir þá klæddist hún skóm við frá Jimmy Choo.

Til þess að setja punktinn yfir i-ið voru neglurnar rauðlakkaðar en á sama tíma voru varirnar náttúrulegar. Það er ekki hægt að mála allt rautt á sama tíma - ekki nema þú sért að fara á námskeið í trúðaskólanum.

Megan Fox í skóm frá Jimmy Choo.
Megan Fox í skóm frá Jimmy Choo. mbl.is/AFP
Megan Fox með rauðlakkaðar neglur.
Megan Fox með rauðlakkaðar neglur. mbl.is/AFP
Megan Fox veifaði til viðstaddra.
Megan Fox veifaði til viðstaddra. ALFREDO ESTRELLA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál