Einn mesti höfuðverkur kvenpeningsins er að finna sér sundföt. Sundfötin þurfa að vera klæðileg og sýna bestu hliðar líkamans. Það er líklega þess vegna sem sumarlínan 2015 frá ISOLA þykir svona spennandi.
Sundfatatískan næsta sumar verður heillandi.
mbl.is/AFP
Sundbolurinn er vel fleginn án þess að það verði of mikið.
mbl.is/AFP
Það væri vel hægt að taka nokkra sundspretti í þessum sundbol í Neslauginni.
mbl.is/AFP
Bikiní með engum hlýrum er afar hentugt í sólböð.
mbl.is/AFP
Þessi sundbolur væri klæðskerasniðinn á hvaða Bond-gellu sem er.
mbl.is/AFP
Þessi sundbolur ýkir mittislínuna.
mbl.is/AFP
Flegið og bert á milli á sama tíma. Það má svo sannarlega.
mbl.is/AFP