Ný undirfatalína frá Britney Spears

Britney Spears er orðin fatahönnuður.
Britney Spears er orðin fatahönnuður. AFP

Söngkonunni Britney Spears er greinilega margt til lista lagt en hún afhjúpaði nýja undirfatalínu í gær sem hún hannaði.

Línan var frumsýnd í New York fyrir útvalda og var Spears sjálf á staðnum til að kynna línuna fallegu. Spears klæddist rauðum flegnum samfesting frá Rhea Costa.

Rauði og svarti liturinn er áberandi í undirfatalínu Spears og er blúndan í aðalhlutverki. Í línunni, sem kallast The Intimate Britney Spears, má finna kynþokkafull undirföt, náttsloppa og undirkjóla svo eitthvað sé nefnt.

Spears var einstaklega ánægð með útkomuna og sendi frá sér skilaboð á Twitter stuttu eftir sýninguna og sagði: „En frábær upplifun. Takk fyrir New York fyrir að færa mér svona yndislega áhorfendur.“

Rauð undirföt einkenndu undirfatalínu Britney Spears.
Rauð undirföt einkenndu undirfatalínu Britney Spears. AFP
Klassískt og fínt.
Klassískt og fínt. AFP
Undirfatalína Britney Spears inniheldur nokkra undir- og náttkjóla.
Undirfatalína Britney Spears inniheldur nokkra undir- og náttkjóla. AFP
Sloppur frá The Intimate Britney Spears.
Sloppur frá The Intimate Britney Spears. AFP
Britney Spears var himinlifandi með undirfatasýningu sína.
Britney Spears var himinlifandi með undirfatasýningu sína. AFP
Undirföt úr smiðju Britney Spears.
Undirföt úr smiðju Britney Spears. AFP
Fólk flykktist að til að skoða hönnun Spears.
Fólk flykktist að til að skoða hönnun Spears. AFP
Britney Spears vakti athygli í rauðum samfesting.
Britney Spears vakti athygli í rauðum samfesting. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál