Klæðir sig eftir borgarlandslagi

Olivia Palermo er tískufyrirmynd margra.
Olivia Palermo er tískufyrirmynd margra. mbl.is/AFP

Tískudívan Olivia Palermo skiptir út fáguðum flíkum sem hún klæðist í New York fyrir afslappaðri og svalari föt þegar hún er í London að eigin sögn.

„London er mitt annað heimili. Mér finnst hver og ein borg hafa ólíka fagurfræði og ég klæði mig eftir því, ég er mun fágaðri þegar ég er í New York. Þegar ég er í London þá klæðist ég til dæmis blazer-jakka og strigaskóm og hef hárið örlítið úfið,“ útskýrði Palermo í viðtali fyrir Hello! á dögunum.

„Ég fer reglulega í Topshop, Reiss og Whistles,“ sagði Palermo aðspurð hvaða tískuverslanir væru hennar uppáhalds.

Palermo er mikil áhugamanneskja um skófatnað en nýverið afhjúpaði hún skólínu sem hún hannaði fyrir ítalska merkið Aquazzura, skórnir eru sparilegir og flestir með pinnahæl.

Olivia Palermo hannaði þessa fallegu skó. Þeir kosta frá 94.000 …
Olivia Palermo hannaði þessa fallegu skó. Þeir kosta frá 94.000 til 190.000 króna.
Olivia Palermo er alltaf smart.
Olivia Palermo er alltaf smart. AFP
London hefur mikil áhrif á fatastíl Olivia Palermo.
London hefur mikil áhrif á fatastíl Olivia Palermo. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál