Lindex opnar sérstaka kvenfataverslun í Kringlunni

Jean Paul Gaultier sýndi línu sína fyrir Lindex í Gautaborg …
Jean Paul Gaultier sýndi línu sína fyrir Lindex í Gautaborg í síðustu viku.

Sænska móðurskipið Lindex er búið að leggja undir sig plássið þar sem Adidasbúðin var áður og ætlar að opna þar 320 fm kvenfatabúð. 

Í síðustu viku fagnaði Lindex 60 ára afmæli sínu í Gautaborg með glæsilegri veislu og tískusýningum. Af því tilefni fékk fyrirtækið Jean Paul Gaultier til þess að hanna sérstaka línu fyrir fyrirtækið.

„Við erum nýkomin frá afmælinu í Gautaborg þar sem við fengum frábæran innblástur og innsýn í það sem koma skal í tískunni og erum gríðarlega spennt fyrir að geta gert því skil í Kringlunni með einstökum hætti,“ segir Lóa Dagbjört Kristjánsdóttir, umboðsmaður Lindex á Íslandi.

Verslunarrýmið, sem mun geyma allar kventískulínur Lindex, Holly & Whyte, Contemporary, Everyday, Generous og hina einstöku Lindex Extended, hefur yfir að ráða framhlið og staðsetningu sem á sér vart hliðstæðu með yfir 160 m2 af gluggum sem snúa út í aðalgöngugötu Kringlunnar.

Hönnun verslunarinnar mun geyma sérkenni sem ekki hafa sést áður í verslunum Lindex hér á landi með samblandi af skandínavískum einfaldleika í bland við liti og lýsingu sem miða að því að skapa tískuupplifun á heimsmælikvarða.

Þessi mynd er af tískusýningunni sem haldin var í tilefni …
Þessi mynd er af tískusýningunni sem haldin var í tilefni af 60 ára afmæli Lindex í Gautaborg á fimmtudaginn var.
Jean Paul Gaultier línan frá Lindex. Hér má sjá brjóstahaldara …
Jean Paul Gaultier línan frá Lindex. Hér má sjá brjóstahaldara sem innblásinn er af Madonnu.
Silfurlitaður leðurjakki úr Jean Paul Gaultier línunni.
Silfurlitaður leðurjakki úr Jean Paul Gaultier línunni.
Jean Paul Gaultier er mikið að vinna með renndur.
Jean Paul Gaultier er mikið að vinna með renndur.
Húðflúrlínan er smart.
Húðflúrlínan er smart.
Undirföt úr húðflúrlínunni frá Lindex sem hönnuð er af Jean …
Undirföt úr húðflúrlínunni frá Lindex sem hönnuð er af Jean Paul Gaultier.
Mamman og stelpan geta verið í stíl.
Mamman og stelpan geta verið í stíl.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál