Klæddist blárri dragt í höfuðstöðvum SÞ

Victoria Beckham var kjörin góðgerðarsendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna.
Victoria Beckham var kjörin góðgerðarsendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna. AFP

Fatahönnuðurinn Victoria Beckham var kjörin góðgerðarsendi­full­trúi Sameinuðu þjóðanna fyrr í vikunni og hélt hún í tilefni þess flotta ræðu á ráðstefnu í höfuðstöðvum SÞ um það starfs sem hún hyggst vinna.

Beckham klæddist glæsilegri dragt sem virðist vera úr hennar eigin smíði en svipaða dragt mátti sjá á tískupallinum þegar hún frumsýndi haust- og vetrarlínu sína fyrir árið 2014.

Jakkinn sem Beckham klæddist var dökkblár með svörtum kraga og náði hann niður fyrir hné. Buxurnar voru svo innvíðar og klæðilegar.

Beinar línur og góð snið hafa einkennt hönnun Beckham hingað til. Haust- og vetrarlínu hennar fyrir 2014 má skoða í heild sinni á heimasíðu hennar, VictoriaBeckham.com.

Victoria Beckham klæddist blárri dragt þegar hún hélt ræðu í …
Victoria Beckham klæddist blárri dragt þegar hún hélt ræðu í höfuðstöðvum SÞ. AFP
Hönnuðurinn Victoria Beckham.
Hönnuðurinn Victoria Beckham. AFP
Þessi jakki kostar 442.000 krónur.
Þessi jakki kostar 442.000 krónur. victoriabeckham.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál