Bleikhærð Kate Hudson mætti í gullkjól

Kate Hudson fékk sér bleikar strípur í hárið á dögunum.
Kate Hudson fékk sér bleikar strípur í hárið á dögunum. AFP

Það var mikið um dýrðir á rauða dreglinum í gær þegar American Cinematheque-verðlaunahátíðin var haldin í Beverly Hills. Gestir hátíðarinnar mætti í sínu fínasta pússi en leikkonan Kate Hudson vakti sérstaka athygli í gylltum kjól.

Hudson klæddist glæsilegum síðkjól frá Jenny Packham og frumsýndi um leið nýja háralitinn sinn en hún fékk sér fölbleikar strípur á dögunum ásamt móður sinni, Goldie Hawn.

Reese Witherspoon leit sömuleiðis vel út en hún klæddist rósóttum satínkjól frá Prabal Gurung. Leikkonan Jessica Chastain valdi svo að klæðast gulum kjól frá Givenchy sem fór henni einstaklega vel.

Matthew McConaughey mætti með sína spúsu og tóku þau sig vel út saman en McConaughey fékk sérstök heiðursverðlaun þetta kvöldið.

Kjóllinn kemur frá Jenny Packham.
Kjóllinn kemur frá Jenny Packham. AFP
Matthew McConaughey og konan hans.
Matthew McConaughey og konan hans. AFP
Reese Witherspoon í kjól frá Prabal Gurung.
Reese Witherspoon í kjól frá Prabal Gurung. AFP
Michelle Monaghan.
Michelle Monaghan. AFP
Gulur fer Jessica Chastain vel.
Gulur fer Jessica Chastain vel. AFP
Anne Hataway klæddist svörtu frá toppi til táar.
Anne Hataway klæddist svörtu frá toppi til táar. AFP
Jennifer Garner er alltaf flott.
Jennifer Garner er alltaf flott. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál