Há klauf og blúnda!

Jessica Chastain klæddist flottum kjól frá Givenchy á frumsýningu Interstellar.
Jessica Chastain klæddist flottum kjól frá Givenchy á frumsýningu Interstellar. AFP

Frumsýning kvikmyndarinnar Interstellar fór fram í Los Angeles og létu stjörnur myndarinnar sjá sig á rauða dreglinum í tilefni þess.

Leikkonan Jessica Chastain fer með eitt aðalhlutverk í kvikmyndinni og þykir gera það afar vel. Hún klæddist baklausum síðkjól frá Givenchy á fumsýningunni. Kjóllinn er svartur og með hárri klauf og blúndu. Chastain var þá með græna áberandi eyrnalokka í eyrunum og hafði hárið greitt til hliðar.

Anne Hathaway fer einnig með hlutverk í myndinni en hún mætti í bláum silkikjól á frumsýninguna og var með fallegt armband í stíl.

Interstellar kemur í íslensk bíóhús í byrjun nóvember.

Blúndan setur glæsilegan svip á kjólinn.
Blúndan setur glæsilegan svip á kjólinn. AFP
Anne Hathaway fer með eitt aðalhlutverk í kvikmyndinni Interstellar.
Anne Hathaway fer með eitt aðalhlutverk í kvikmyndinni Interstellar. AFP
Anne Hathaway var með flott armband.
Anne Hathaway var með flott armband. AFP
Camila Alves McConaughey lét sig ekki vanta.
Camila Alves McConaughey lét sig ekki vanta. AFP
Camila Alves McConaughey og Matthew McConaughey.
Camila Alves McConaughey og Matthew McConaughey. AFP
Molly Sims.
Molly Sims. AFP
Leikkonan Jess Weixler.
Leikkonan Jess Weixler. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál